Atburðarteljari

Auglýsing

Árið 2008

21. janúar 2009 klukkan 23:39
Þetta ár hefur verið heldur betur lærdómsríkt og fáránlega skemmtilegt. Ég hef verið svo ótrúlega heppin að hafa fengið að upplifa alveg helling og kynnast yndislegu fólki. Ég get sagt að þetta ár var ekki alveg eins og ég bjóst við, það breyttist alveg heill hellingur og er ég mjög ánægð með útkomuna.Ég upplifði eins og gengur og gerist bæði góða og slæma hluti. Ég er alveg ákveðin í því að þessir hlutir hafa gert mig að betri manneskju og látið mig hugsa aðeins.
Það hefur frekar oft komið uppá á þessu ári að ég sé algjörlega týnd og viti nánast varla hvar í heiminum ég er stödd. Á þeim stundum hafa margir reynst mér vel en ég hef einnig lært að það er engin sem ákveður fyrir mann hvað maður gerir í lifinu, það er allt í lagi að týnast aðeins svo lengi sem maður finnur sína leið aftur.
Ég hef verið mikið á flakki og þegar ég tek það saman þá hef ég verið sirka 5 mánuði á Íslandi og 7 mánuði í útlöndum. Það að ferðast finnst mér óendanlega gaman og hef ég verið svo heppin að geta gert mikið af því í ár.
Eins og alltaf þá upplifði ég bæði slæma og góða hluti og ánefa þá hef ég lært mikið af þessum hlutum.
Þegar maður hefur gert allt sem maður getur til að bæta eitthvað ákveðið og fær engin viðbrögð þá er tími til að halda áfram og gleyma því liðna, sama hversu erfitt það er að gleyma. Það er tímasóun að eyða orku og tíma sínum í það að láta sér líða illa yfir einhverju sem virðist kannski ekki vera svo mikilvægt eftir allt saman.
Þótt við höldum að við getum ekki lifað án einhvers, þá kemur það manni oft á óvart hversu vel maður kemst af.
Það gera allir einhverntíman mistök í lífinu en það eru ekki allir jafn sterkir að geta fyrirgefið.
Þessi setning er ávallt mjög ofarlega í huga mér og þykir mér mjög vænt um hana. Það spilar eflaust mikið inní að manneskjan sem sagði hana er mér mjög kær þrátt fyrir að ég geti varla sagt að hún sé enþá partur af lífi mínu.

Mig langar að koma með smá yfirlit yfir árið sem er liðið.

Janúar:
Ég vann ótrúlega mikið uppá Dalbæ um jólin og á milli jól og nýárs. Ég sé alls ekki eftir því, það var æðisleg upplifun að vera með gamla fólkinu á þessum tíma. Yndislegur tími. Áramótin voru góð og var 1.janúar ánefa erfiður dagur, þrátt fyrir það þá fór ég í vinnu!
Við amma og afi flugum út til Kína 7.janúar. Þetta var ótrúlegur tími og mun ég aldrei gleyma honum  Þegar ég var úti var kaldasti vetur sem komið hefur í Kína í 50 ár og tók maður alveg eftir því, það kom meira segja snjór ! Það var ógeðslega kallt á tímabili. En maður er ekki sannur íslendingur fyrir ekki neitt ;)

Febrúar:
Yfir nýja árið í Kína fór ég með ömmu og afa í viku til Malasíu. Fórum á eyju sem heitir Langkawi og vorum einnig í Kuala Lumpur. Það var gott að komast í hitann, enda vorum við amma duglegar að sleikja sólina, afi sat frekar undir sólhlíf, full klæddur að lesa bók. Það var frekar mikill munur á hitastiginu í Malasíu og Kína.
Ég get alveg fullyrt það að á mínum lista sem ég ætla að gera áður en ég dey er eflaust að fara aftur til Kína og Malasíu.
Ég var samtals 5 vikur með ömmu og afa og ég get ómögulega fundið lýsingarorð sem lýsir þessum tíma nógu vel. Takk æðislega fyrir þennan tíma amma og afi ;*
Ég lenti á Íslandi 14.febrúar og var þetta frekar stutt stopp á Íslandinu því ég hélt til Þýskalands aðeins viku seinna eða 21.febrúar.
Ég lét langþráðan draum rætast að fara vinna á hestabúgarði í Þýskalandi. Þetta var eitthvað sem ég hélt að ég myndi aldrei gera en viti menn það varð að því :D Ég var mjög heppinn með stað og ég er alveg viss um að ég hefði ekki getað lent á betri stað.
Ég var mjög stollt af mér að redda mér sjálf á flugvellinum í Frankfurt og síðan í lestina til Freiburg. Hanna kom og náði í mig í Freiburg. Ég hitti semsagt Hönnu og Hauk í fyrsta skipti þegar ég kom út.

Mars:
Ég var út í Þýskalandi í s-inu mínu, mokandi skít og ríða út. Alveg ótrúlega ánægð með lífið.

Apríl:
Fyrstu páskarnir mínir sem ég upplifði ekki með familíunni minni. Þetta var ekki auðvelt en þrátt fyrir heimþrá átti ég æðislega páska. Hér kemur páskahérinn með gjafir og nammi sem maður þarf að leita af. Ég þurfti að leita og fékk ég æðislega körfu fulla af gómsæti. Ekki má gleyma páskaegginu sem ég fékk sent frá Íslandi :D

Maí:
Fórum með minnir mig 14 hross á kynbótasýningu. Þurftum að keyra í 6 tíma. Þetta var skemmtileg upplifun en erfið þrátt fyrir það, mikið að gera !
Þegar við komum heim af sýningunni voru aðeins nokkrir dagar í að ég héldi heim. Ég gerði heljarinnar innkaup í Freiburg.
Mig minnir að ég hafi flogið heim 8.maí Það var ótrúlega gott að komast heim og hitta alla aftur. Ég kom liggur við beint í ferminguna hjá Sigfúsi bróður. Já, litli bróðir er ekki svo lítill lengur !

Juní-Ágúst
Ég byrjaði að vinna á Dalbæ aftur 15 júní og var agætt að komast þangað aftur.
Ég og Binna fórum á LM, þótt aðeins öðruvísi en ákveðið var. En þetta var skemmtilegt samt sem áður.
Fiskidagurinn var auðvitað í ágúst og komu Silja og Munda norður til mín. Við áttum ótrúlega skemmtilega helgi saman :D
Þetta sumar var frábært í allastaði og einkenndist það af miklu djammi og mikilli vinnu.
Ég komst bæði inn í HA og HÍ í hjúkrun svo ég þurfti að ákveða hvort ég ætlaði að halda mig á norðurlandinu eða flytja suður. Ég ákvað að halda mig á norðurlandinu og 21.ágúst byrjaði ég í HA og  alvaran tók við.
Ég leigði herbergi á Ak og byrjaði einnig að vinna á leikskólanum Hólmasól.

September
Göngurnar tóku við og fór ég með Binnu og familí í göngur.
Eftir aðeins rúmar 3 vikur  í skólanum ákvað ég að hætta því ég var alls ekki að finna mig í þessu námi, hugurinn er ávallt í sveitinni og veit ég núna að ég á bara að læra eitthvað sem tengist henni.
Aldrei að efast um að þú getir eitthvað því þú getur allt sem þig langar til ef viljin er fyrir hendi.
Þá tók við mikil óvisssa um hvað ég ætti að gera og eftir miklar vangavelltur ákvað ég að fara aftur til Hönnu og Hauks í Þýskalandi.
Ég hætti í skólanum og sagði upp leigunni en hélt áfram að vinna á Hólmasól.

Október:
Stóðréttirnar tóku við og þrátt fyrir ógeðslegt veður og nákvæmlega enga stemmingu á réttunum þá var stóðréttaballið sjálft mjög skemmtilegt ;)
Ég hætti að vinna á Hólmasól 11. október og hélt til Þýskalands þann 14.október og verð ég að segja að ég sé ekki eftir þessari ákvörðun. Ég kom 3 dögum á undan Hönnu og Hauk því þau voru á Íslandi.

Nóvember:
Mikið um að vera hér í sveitinni í Þýskalandi. Það komu 8 nýjir hestar frá Íslandi og síðan var einnig mikið um heimsóknir.
Skellti mér meðal annars í verslunnarferð til Freiburg, eyddi þar dágóðum 7 klukkutímum labbandi úr búð í búð. Mér leiddist alls ekki og var þetta æðislegur dagur.

Desember:
Fyrsti í aðventu kom og ég hafði ekki einu sinni hugmynd um að aðventan væri byrjuð. Áttaði mig bara á því þegar Bettina kveikti á aðventukransinum.
Mér fannst aðventan flúga áfram og 22.desember var komið áður en ég vissi af !
Það er alveg greinilegt að ég á bestu fjölskyldu og vini sem hugsast getur ! Alltaf gott að vita að það sé hugsað til manns. Aldrei grunaði mig að ég myndi fá svona marga pakka senda og svona mikið góðgæti. Þau hérna á heimilinu voru farin að hrissta hausinn yfir þessum pökkum sem komu alltaf til mín með póstinum...og alltaf urðu þeir stærri og stærri ! En þau voru nú samt líka ánægð því þau nutu góðs af.
Toppurinn var þó samt þegar við fengum bréf sent hérna heim á Freyel sem stóð að við þurftum að fara í tollinn og ná í pakkan minn frá múttu. Ég var svo svakalega stressuð að Hanna var farin að hlægja frekar mikið af mér. Allt reddaðist þetta nú á endanum, þurfti að opna kassann fyrir framan starfsmann. Hann rétt kíkti inn og sá svo hversu mikið var í pakkanum og held að hann hafi bara ekki nennt að fara í gegnum þetta allt saman. Ég labbaði út á endanum brosandi allan hringinn og gat ekki beðið eftir því að sjá almeginlega hvað var inní pakkanum.
Jólin voru yndisleg. Borðuðum rosa góðan mat og áttu góðar stundir. Erfiðast var samt að tala við familíuna um kvöldið, en á nokkrum min talaði ég við 14 manns..Það má nú teljast helvíti gott :) Það var rosaleg gott að heyra í öllum.
Áramótin voru einnig góð og aldrei hef ég sofnað svona snemma. Mamma hringdi í mig á miðnætti heima á Íslandi, þá var klukkan 1 hér. Eftir að ég talaði við hana þá sofnaði ég, s.s svona um hálf 2 :P Geri aðrir betur :P haha
Vanknaði svo eldhress um 8 leitið á nýársdag til að gefa elsku hestunum að éta ;)

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
 Held að þetta sé komið nóg í bili, efast um að einhver hafi nennt að lesa þetta allt saman :P

Knús
Anna Kristín sem er að fara til Íslands á MORGUN :D

Þýskaland 23.desember

23. desember 2008 klukkan 23:08

Ég er svo langt frá því að trúa því að það sé komin þorláksmessa...aðfangadagur á morgun !!

Þetta var frekar öðruvísi dagur í dag en mín síðustu ár !
Reyndar mjög skemmtilegur, vorum bara að snyrta og gera allt fínt í hesthúsinu svo það þurfi ekki að gera mikið á morgun.
Skrítið að moka skít á þorláksmessu, það hef ég bara aldrei gert áður..

Ég fór heim með Hönnu, Hauk og Hilmi í kvöld. Ég fékk svo rosalega góða tilfinningu, notalega og virkilega góða jólatilfinningu !
Haukur sauð hangikjöt svo húsið ilmaði. Ég horfði síðan með Hilmi á jólamynd og sötraði bjór á meðan.Við Hanna skreyttum síðan jólatréð og pökkuðum inn síðustu jólagjöfunum. Ég strauaði meiri segja skyrtuna hans Hilmirs, ég sem hélt ég gæti ekki strauað ;) Rosalega heimilislegt, rétt eins og það er best :)

Eins og sumir hafa tekið eftir kannski þá er þetta meiri háttar mál fyrir mig að vera ekki heima á jólunum ! Ég ákvað þetta náttúrulega alveg sjálf, en þrátt fyrir það þá er þetta svoltið erfitt...Ég fékk eiginlega sting í brjóstið þegar mamma sagði mér að þau væru að fara suður og þau ætluðu að vera öll saman, þá virkilegafannst mér erfitt að sætta mig við að vera hérna úti...allir saman nema ég. En það er búið núna, þetta var bara eitthvað svona nokkra klukkutíma dæmi:)

Ég pantaði mér flug heim til Íslands 22.janúar-29.janúar :) Eins gott að þorrablótið sé þessa helgina annars veit ég ekki hvað ég geri !!! Verð allavegana ekki ánægð !
Það veðrur ótrúlega gott að komast heim þott stutt verði stoppið, það má bara ekki vera lengra því ég verð byrjuð í skólanum og vil ekki missa mikið úr :P:)

Jæja,en það sem mig langaði aðallega að segja var

Gleðileg jól og farsælt komandi ár !
Gangiði hægt um gleðinar dyr en munið samt að djamma fyrir mig líka um áramótin þar sem ég verð líklega sofnuð fyrir 3 ;)
Takk kærlega fyrir öll kortin, gjafirnar og nammið, ég er ótrúlega þakklát ;*
Þúsund kossar & knús frá mér
 Anna Kristín

Þýskaland 11.desember 2008

11. desember 2008 klukkan 21:50
Ég er búin að vera hérna úti í rúmlega 8 vikur og um mánuður síðan ég fór síðast á netið. Mér finnst tímin alltaf alveg svaaakalega fljótur að líða !!
Eins og alltaf þá er lífið gott hérna í Þýskalandinu og ég ávallt rosa glöð með lífið.
Veðrið er reyndar eitthvað að breytast og er veturinn komin. Það er allt hvítt af snjó og orðið freekar kallt úti. Spáð 10 stiga frosti um helgina !

Ég skrapp til Freiburg í byrjun nóvember í smá verslunnar leiðangur! Ég get tekið lest beint til Freiburg frá Hinterzarten sem er bær tæplega 20 min í burtu héðan. Ég fór beint eftir morgunmat og var því komin til Freiburg rétt fyrir 10. Var mætt niður í bæ um leið og búðirnar opnuðu...auðvitað !!
Ég fílaði mig í botn ein, labbandi í búð úr búð. Mér tókst að eyða dágóðum 7 klukkutímum í Freiburg ásamt dágóðum slatta af evrum. Verslaði mér þessi fínu jóla-og áramóta föt ásamt nokkrum jólagjöfum. Mínir heitt elskuðu bræður og foreldrar eru þau einu sem fá sendan smá pakka frá mér, hinir verða að bíða þar til í janúar/febrúar ef ég kem heim í heimsókn. Of mikið bras að vera senda allar jólagjafirnar til Íslands svo sorry elskurnar, en ég efast nú ekki um að þið getið beðið fram í janúar/febrúar ;)

Um miðjan nóvember tók maður eftir því að það voru svo sannarlega að koma jól. Sjálf er ég ekkert svaka mikið að pæla í því, þótt það séu bara tvær vikur í jólin !!
Ég er eiginlega meira farin að kvíða jólunum heldur en hlakka til. Ég held að þetta verði frekar skrítið og erfitt að vera ekki með familíunni.
Þótt ég hafi verið að vinna í fyrra á aðfangadag frá 16-23 og nánast alla daga á milli jóla og nýárs þá var ég nú samt með familíunni minni þar á milli. Ég get ekki beint farið heim og knúsað alla þessi jól, það verður erfitt og skrítið.
Við ætlum að gera laufabrauð í næstu viku. Síðan verður mjólkurgrautur með möndlu í hádeginu á aðfangadag, svo ég upplifi nú líka smá íslensk jól !!

Ég er orðin frekar spennt að fá pakkann sendan frá familíunni. Ef ég þekki familíuna mína rétt þá mun þessi pakki innihalda margt gott og skemmtilegt. Það verður ánefa mjög stórt bros sem kemur þegar ég opna pakkann.

Það mun vera meira en nóg að gera hérna úti um jólin þar sem vinnumaðurinn fer náttúrulega heim. Ég, Hanna og Haukur verðum bara ein hérna á Freyel yfir jólin og nýja árið. Bettina og Joseph verða hér reyndar á aðfangadag en fara svo til Bali á jóladag. Svo við verðum þrjú með 30 hesta á járnum + útigangshrossin sem eru um 20, 3 hunda og 2 ketti og þurfum að gefa, moka, ríða út og allt sem þessu fylgir. Ég held að það verði bara ágætt að hafa mikið að gera, þá hugsar maður kannski minna um það sem maður er að missa af heima á Íslandi.
Það verður allavegana ekkert djamm á mér þessi áramót...það er víst :P

Um miðjan nóvember var Hilmir litli farin að hlusta á jólalög takk fyrir. Heeeldur snemmt fyrir minn smekk en hann eelskar þetta. Ég er farin að kunna textana utanaf því Hilmir vill að ég syngji með sér svo ég læri þýsku. Hann hefur svaka áhyggjur af því að ég læri ekki þýskuna.

Ég er allt í einu farin að skilja þýskuna betur, sem er mjög gott. Ég er farin að tala miklu meira og svo er Hanna nánast hætt að tala við mig á Íslensku, talar bara þýsku við mig núna og er það bara mjög fint. Ég segji nú ekki að ég myndi alveg réttar setningar en þetta kemur allt saman.

Við Hanna, Hilmir og Bettina fórum á jólamarkaðinn í Freiburg um daginn. Frekar stór markaður með fullt af básum þar sem fólk var með margt til sölu. Ég hefði getað keypt alveg heilan helling þarna, ótrúlega fallegt jóladúllerí ! Allt orðið ekkert smá fallega skreytt og ég fékk þvílíka jólatilfinningu.
Þar smakkaði ég meðal annars Glühwein, sem er heitt rauðvín. Kom mér skemmtilega á óvart hversu gott þetta var en þetta fór samt beint í hausinn á mér, svo ég drakk nú ekki mikið af þessu.
Ég smakkaði líka sykurhúðaðar mödlur. Mér finnst möndlur nú ekkert sérstakar en þetta var rosalega gott. Það var líka sykurhúðaðar hnetur, en þar sem ég borða ekki hnetur þá smakkaði ég það ekki.

Ég átti yndislegan afmælisdag. Reyndar finnst mér ég hafa tapað öllu tímaskyni því mér finnst svo stutt síðan stelpurnar mínar voru allar hjá mér í mat þegar ég varð 18. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt !!
Ég, Hanna og Hilmir fórum til Freiburg eftir hádegi og ég fór í viðtal í skólanum sem ég er að byrja í eftir áramót. Hann heitir Volkhochschule Freiburg og ég er að fara að læra þýsku.
Ég byrja 16.janúar og fer 2svar í viku, á mánudögum og föstudögum frá 9:00 til 10:45.
Held að þetta verði bara ótrúlega gaman og skemmtileg tilbreyting.
Um kvöldið fórum við síðan öll út að borða og fengum alveg ótrúlega góðan mat ! Ég gisti síðan heim hjá Hönnu og Hauk.

Þrátt fyrir að alltaf sé verið að segja mér að hætta plana svona mikið fyrir fram og taka bara einn dag í einu og vera ánægð með það sem ég er að gera í augnablikinu, þá get ég ekki gert að því að ég er bara svona og get ekki hætt að plana.
Ég er alltaf að hugsa um hvað ég eigi að gera næsta haust og hvað ég eigi að vera lengi hérna úti. Það er reyndar alveg pottþétt mál að ég verð allavegana þar til í maí. Kynbótasýningin er fyrr á þessu ári heldur en síðasta og er hún núna í enda apríl, ef ég man rétt.
Ef ég fæ vinnu heima á Dalvík í sumar þá líklega kem ég heim í enda maí.

Ég held að ég sé búin að fá mína útrás eftir að hafa verið í Hraðbraut. 2ár í skóla að drekkja mér í námsefnið og 2ár sem skiptust í flakk, ferðalög, vinnu og skemmtileg heit.
Þrátt fyrir að þessi tvö ár fyrir sunnan í Hraðbraut hafi verið erfið þá verð ég að segja að ég sakna þeirra frekar mikið, ekki eins mikið samband við krakkana eins og ég hefði viljað...það er svona að vera sú eina sem býr ekki í borginni !!
En ég held að í haust sé komin tími til að fara í skóla og læra eitthvað og kannski halda sig á sama stað í einhvern tíma ;)
Ætli það komi nokkuð annað til greina en að drífa sig loksins á Hvanneyri í haust í búfræðinginn. Ég veit ekki um neitt annað sem ég get hugsað mér að læra, nema jú dýralækninn. En langar að fara í eitthvað annað fyrst.
Ekki fer ég aftur í hjúkrun...eða hver veit hvað mér dettur í hug...kannski dríf ég bara í afríkuferð !
Kannski er bara best að vera ekkert á Íslandi á meðan þessi blessaða kreppa er, ekkert svakalega spennandi allavegana. Læra kannski bara búfræðinginn hérna úti í Þýskalandi..??

Það er alveg ferlega fyndin þáttur hérna í sjónvarpinu sem heitir "Bauer sucht Frau".
Þetta eru allt einhleypir bændur sem eru í leit af konu. Sá elsti er 71 hænsnabóndi og sá yngsti er 23 svínabóndi.
Þeir fá send bréf frá konum sem hafa áhuga að kynnast þeim og búa hjá þeim í einhvern ákveðin tíma, þeir ákveða svo hverja þeir vilja fá til sín og hringja í hana og bjóða henni til sín.
Það er alveg ótrúlegt hvað fólki dettur í hug að búa til...en samt sem áður þá horfir maður á þetta ;)

Þeir sem þekkja mig vel vita að ég er ekki mjög mikið fyrir ketti, eiginlega bara hálf hrædd við þessi dýr. Ég get ekki gert að því að ég fæ bara hálfgerðan hroll þegar ég sé þá.
Ég man eftir því þegar ég kom hingað fyrst í febrúar þá bað Haukur mig um að ná í kettina upp í hlöðu og koma með þá niður. Ég ákvað að láta mig hafa það..Það endaði þannig að mér tókst að halda á öðrum þeirra en svo um leið og hann byrjaði að mjálma og hreyfa sig þá gat ég ekki meir. Ég endaði á því að fara niður og biðja Hauk um að ná í þá. Þetta fannst öllum hérna á heimilinu mjög fyndið og óskiljanlegt þar sem þau eru öll svo mikið fyrir ketti.
Alltaf þegar ég fer upp til að henda niður heyi þá kemur Máni og nuddar sér alltaf utan í mig, ég fæ alltaf sama hrollinn. Ég ákvað svo um daginn að klappa honum, beigði mig niður og  tók hann í fangið og var svaka góð við hann, en alltaf með sama hrollinn á meðan. Hvað haldiði að kvíkindið hafi gert?? Hann pissaði á mig !! Ég var sko ekki ánægð og það mun líða laaangur tími þar til ég mun láta mig hafa það að klappa honum aftur.

Ég held að þetta sé orðið ágætt, svona áður en ég fer að bulla eitthvað meira...Það líður vonandi ekki svona langur tími næst þar til ég blogga aftur og vonandi hef ég þá eitthvað skemmtilegra að segja ;)Endilega skiljið eftir ykkur spor svo ég sjái hverjir eru að lesa :)

Knús og saknaðar kveðjur til ykkar elskurnar ;* ;*

Freyelhof - 7.nóvember 2008

07. nóvember 2008 klukkan 23:16
Jæja þá er ég búin að vera hérna úti í rúmlega 3 vikur og tímabært að koma með smá fréttir af mér :)

Þegar ég kom var rétt byrjað að hausta og laufin að falla af trjánum, litirnir í umhverfinu eru ekkert smá fallegir ! Maður getur gleymt sér endlaust í því að horfa á náttúruna. Í ár er víst mjög gott haust og ekki kvarta ég.

Fyrstu dagana var bara sól og hiti og ég var úti á þunnri peysu. Það snjóaði alveg helling fyrir viku síðan og var mjög kalt og allt í snjó í 3 daga.
Núna er allur snjórinn farin, það var svo hlýtt í dag að ég var á bolnum úti. Ekki eins og það hafi verið snjór fyrir nokkrum dögum !

Ég keypti mér nýja myndavél í fríhöfninni áður en ég fór út. Ég er ekkert smá ánægð með hana ! Er búin að missa mig í því að taka myndir af hestunum, þó sérstaklega folöldunum og ungu graðhestunum.

Mér líður ekkert smá vel hérna úti og eins og einhverjir hafa eflaust frétt þá hef ég ákveðið að vera hér úti um jólin og áramótin. Þetta verða eflaust rólegri áramót en áramótin síðustu ár :P Mér finnst mjög spennandi að upplifa jólin hérna úti þrátt fyrir að ég viti að söknuðurinn verður án efa mikill !!
Það fær engin jólagjöf frá mér fyrr en í febrúar :) Ég nenni ekki að vera senda gjafir heim ef ég er að koma heim í heimsókn í byrjun febrúar :)

Svo ég verði nú alveg hreinskilin þá hef ég bara varla fengið eina einustu heimþrá. Ég reyni að hugsa ekki um hverju ég er að missa af heima á Íslandi, heldur frekar um hvað ég er að fá tækifæri til að gera í staðin hérna úti.
Mamma hringir alltaf í mig á sunndögum. Það er ágætt að hafa eitthvað svona fast til að hlakka til :)
Ég er vel geymd hérna úti í sveit í kringum hesta í Þýskalandi.

Þýskan gengur og gengur ekki..Ég skil meira en ég get talað. Spurning um að láta sig hafa það og byrja að tala ! Maður velur alltaf auðveldustu leiðina og í þessu tilviki er það að tala íslensku :P En það mun breytast.
Hanna er nefninlega búin að skrá mig á þýskunámskeið í háskólanum í Freiburg og markmiðið er að vera altalandi þegar ég fer heim..haha...Það vonandi gengur upp !!
Fer í viðtal í skólanum á sjálfan afmælisdaginn minn, 8des til að finna út í hvaða námskeið ég á að fara. Þetta er allt í stigum eftir því hversu langt maður er komin í þýskunni.
Námskeiðið sjálft byrjar svo 13.janúar minnir mig og er út apríl ef ég man rétt. Ég mun fara 2svar í viku :)
Mér finnst þetta rosalega spennandi og hlakka mikið til. Þrátt fyrir að mér leiðist alls ekki hérna einangruð lengst upp í sveit þá verður gaman að hitta nýtt fólk og svona :)

Ég hélt nú að það tæki mig langan tíma að venjast músunum aftur..en núna er liggur við bara orðið notalegt að sofna við hljóðið í þeim þegar þær skríða inn í veggjunum :P
Mér finnst þetta allt í lagi svo lengi sem ég sé þær ekki. Við Hilmir vorum bara inn í stofu um daginn á Freyel og við sáum 4 mýs á stuttum tíma...ég hélt ég myndi vá hjartaáfall..Ég passa mig ávallt að reyna hafa fæturnar ekki niður á gólfi þegar ég borða hádegismat, því þær leynast oft nálægt elhúsborðinu !

Ég er alveg hætt að geta sofið út, ég sem hélt að það væri ekki hægt ! Ég s.s er alltaf í fríi á sunnudögum en er samt alltaf vöknuð kl. hálf 8. Líkaminn minn er greinilega bara orðin stilltur á þann tíma. Tengist eflaust því líka að ég fer freekar snemma að sofa alltaf :P

Það eru semsagt bara spennandi tímar framundan hjá mér og vildi ég bara láta vita af mér. Væri ótrúlega gaman að heyra frá ykkur :)

Ætlaði að skella inn myndum en það virðist ekki ætla að ganga :S
En myndirnar eru inná:
www.snapfish.co.uk
Klikka síðan á "log in" sem er efst til hægri
anna_bananoz@hotmail.com
lykilorðið er nafnið á hestinum mínum

Knús&kossar
Anna Kristín

Prófíll

  • Nafn: Anna Kristín Leifsdóttir
  • Netfang: anna_bananoz@hotmail.com
  • Staður: Kína
  • Hjúskaparstaða: Single

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...